On this page
félagsráðgjafi
Explore " félagsráðgjafi" with insightful episodes like "GEÐVARPIÐ // Nína Eck - jafningi á geðsviði" and "Veltan #9 - Katrín Helga Hallgrímsdóttir" from podcasts like ""Landspítali hlaðvarp" and "Veltan"" and more!
Episodes (2)
Veltan #9 - Katrín Helga Hallgrímsdóttir
Níundi viðmælandi Veltunnar er Katrín Helga Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur.
Katrín Helga er reynslumikill lögfræðingur sem hóf störf hjá Barnavernd árið 2019. Hún er fædd og uppalin á Bergstaðastrætinu í hjarta 101 en í dag býr hún með tveimur fjörmiklum sonum í eldgömlu steinhúsi í Vesturbænum. Katrín tók örlitla beygju á starfsferlinum þegar hún byrjaði hjá Barnavernd, en áður hafði hún meðal annars rekið lögfræðistofu, setið í stjórnum fyrirtækja og stofnunum og upplifað bæði útrás og hrun í fjármálageiranum. Hún elskar að vinna með mögnuðu starfsfólki sem brennur fyrir að gera hlutina vel og faglega - allt til að tryggja velferð barna og styðja þau og fjölskyldur þeirra til betra lífs.
-
Veltan er hlaðvarp velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Í Veltunni kynnumst við áhugaverðu fólki sem tengist velferðarþjónustu og ræðum lífshlaup þeirra, fjölbreytta reynslu, faglega þekkingu og verkefni í lífinu.
Umsjónarfólk Veltunnar er Hólmfríður Helga Sigurðardóttir og Arnar Snæberg Jónsson.