Hvað er fóstur?
Í þessum fyrsta þætti hlaðvarpsins Fósturfjölskyldur ræða þau Guðlaugur Kristmundsson og Hildur Björk Hörpudóttir spurninguna Hvað er fóstur?
Þau sitja bæði í stjórn Félags fósturforeldra og eru fósturforeldrar. Spurningar um fóstur sem vakna í kjölfarið eru mýmargar og þau ræða nokkrar, t.d.:
Hvað er fósturbarn? Hvað er fósturforeldri? Hvers vegna fer barn í fóstur? Hver er munurinn á skammtíma fóstri, langtíma fóstri og styrktu fóstri?
Fylgist með og gerist áskrifendur að hlaðvarpinu, nýr þáttur kemur í hverri viku næstu fimm vikurnar.
Hér getur þú fylgst með starfi Félags fósturforeldra og sent inn spurningar:
https://www.facebook.com/fosturforeldrar
https://www.fostur.is/
fostur@fostur.is