Logo

    normið workshop

    Explore "normið workshop" with insightful episodes like "Normið ÁSKRIFT - Upplýsingar", "233. Heilsukvíði - Ási sálfræðingur frá Kvíðameðferðarstöðinni", "231. "Alexa, Turn off my brain"", "227. Pressudetox" and "225. Hvers vegna ertu að ströggla í lífinu? - Wound Mapping" from podcasts like ""Normið", "Normið", "Normið", "Normið" and "Normið"" and more!

    Episodes (5)

    233. Heilsukvíði - Ási sálfræðingur frá Kvíðameðferðarstöðinni

    233. Heilsukvíði - Ási sálfræðingur frá Kvíðameðferðarstöðinni

    Mörg finnum við fyrir allskonar kvíða á lífsleiðinni og okkur þótti mikilvægt að ræða aðeins heilsukvíða í samhengi við síðasta þáttinn okkar, viðtal við stofnendur Intuens. Í fyrsta skipti hefur einstaklingurinn öðruvísi vald yfir upplýsingum um eigin heilsu og þess vegna er eðlilegt að velta fyrir sér hvernig áhrif þetta hefur allt saman á manneskjuna. 

    Við ræddum líka félagsfælni og kvíða almennt og hvernig sé hægt að vinna í að losa sig úr vítahringnum sem myndast þegar hausinn fær að hlaupa taumlaust úr á kvíðatúnið. 

    Ási, eða Ásmundur Gunnarsson, starfar sem sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni og hans áhugasvið liggur meðal annars í þráhyggju og áráttuhegðun. Hann er ekki bara fáránlega fróður um málefnið heldur líka bara mjög skemmtileg manneskja. Úr varð þessi negluþáttur sem flestir verða að hlusta á! 

    231. "Alexa, Turn off my brain"

    231. "Alexa, Turn off my brain"

    Í þessum þætti ræðum við hvernig við getum tekist á við hátt Cortisol stig, en cortisol er auðvitað aðal streituhormónið í líkamanum. Hvernig hefur það áhrif á líf okkar í daglegu lífi? 

    Hvernig lítur lífið út þegar það er ekki óregla í taugakerfinu? Hér er á ferð mikilvægur þáttur fyrir þau sem að langar að taka streituna föstum tökum og mögulega finna þetta blessað jafnvægi!

    Logo

    © 2024 Podcastworld. All rights reserved

    Stay up to date

    For any inquiries, please email us at hello@podcastworld.io