Veltan #2 - Þóra Kemp
Annar viðmælandi Veltunnar er Þóra Kemp, teymisstjóri nýs Virknihúss á vegum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar þar sem haldið er utan um öll virkniúrræði borgarinnar með heildstæðri og einstaklingsmiðaðri nálgun.
Þóra er öflugur félagsráðgjafi - reynslubolti í velferðarþjónustu, hláturmildur fjallagarpur, þriggja barna móðir og gefandi manneskja sem er alltaf til í að læra nýja hluti. Þó að lögheimilið sé í Garðabæ er Þóra með Reykjavík og velferðarsvið í hjartanu alla daga.
-
Veltan er hlaðvarp velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Í Veltunni kynnumst við áhugaverðu fólki sem tengist velferðarþjónustu og ræðumm lífshlaup þeirra, fjölbreytta reynslu, faglega þekkingu og verkefni í lífinu.
Umsjónarfólk Veltunnar er Hólmfríður Helga Sigurðardóttir og Arnar Snæberg Jónsson.