LEGVARPIÐ - LJÓSMÆÐRALÍF // Hólmfríður Garðarsdóttir spjallar við Sunnu Maríu og Stefaníu Ósk
"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum fjórða þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala forvitnast þær um störf ljósmæðra erlendis með samtali við Hólmfríði Garðarsdóttur ljósmóður. Hún hefur ferðast vítt og breitt um veröldina undanfarinn aldarfjórðung og starfað við fagið, meðal annars í Afganistan, Írak, Íran, Mósambík, Norður-Kóreu, Papúa Nýju-Gíneu, Súdan og Tansaníu. Hólmfríður ræðir í viðtalinu bakgrunn sinn og helstu viðfangsefni gegnum tíðina. Þátturinn hefur yfirskriftina "Ljósmæðralíf" og er unninn í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands.
Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á samfélagsmiðlum spítalans, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Stjórnandi Hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en stjórnandi upptöku er Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala.
Þess má geta að Sunna María og Stefanía Ósk hafa haldið úti Legvarpinu um nokkurt skeið og eldri þætti þess má meðal annars finna á bæði Soundcloud og Spotify.
Krosssaumuð píka: Birta Rún Sævarsdóttir
SIMPLECAST
https://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/legvarpid-04