Logo

    þjóðmál

    Explore " þjóðmál" with insightful episodes like and "Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands: Bakgrunnurinn, baráttan, þjóðmálin og áhyggjurnar af Arsenal" from podcasts like " and "Landspítali hlaðvarp"" and more!

    Episodes (1)

    Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands: Bakgrunnurinn, baráttan, þjóðmálin og áhyggjurnar af Arsenal

    Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands: Bakgrunnurinn, baráttan, þjóðmálin og áhyggjurnar af Arsenal

    Sjúkraliðar gegna lykilhlutverki í heilbrigðisþjónustunni. Á Landspítala starfa yfir 600 sjúkraliðar, en á landinu öllu eru um 4.000 manns með sjúkraliðamenntun og þar af eru 2.100 manns starfandi sem slíkir. Sjúkraliðar eru næststærsta heilbrigðisstétt landsins og starfa á öllum heilbrigðisstofnunum; sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum, forvarnar- og endurhæfingarstofnunum, lækna- og rannsóknarstofum og í heimahjúkrun. Viðmælandi okkar að þessu sinni er Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Sandra hefur forvitnilegan bakgrunn, en hún sat á Alþingi um skeið, er heitur aðdáandi knattspyrnuliðsins Arsenal, Hafnfirðingur að uppruna og sótti sér mannsefni norður yfir heiðar.

    Það er Stefán Hrafn Hagalín sem ræðir við Söndru. Upptöku annaðist Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en líka í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitunum Simplecast og Podcast Addict.

    Logo

    © 2024 Podcastworld. All rights reserved

    Stay up to date

    For any inquiries, please email us at hello@podcastworld.io