"Dagáll læknanemans" er nýtt hlaðvarp fyrir læknanema (cc: Félag læknanema) og aðra áhugasama um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Hlaðvarpið fær til sín sérfróða gesti og tekur fyrir ýmis læknisfræðileg vandamál. Gestur þessa þáttar er Sigurður Guðmundsson, sérfræðingur í smitsjúkdómalækningum og fyrrverandi landlæknir.
Sigurður ræðir sýkingar í miðtaugakerfi (MTK). Hverjar eru birtingarmyndir sýkinga í MTK og hvernig er greint á milli þeirra? Þá eru helstu flokkar sýkinga í MTK kerfi og meinvöldum gerð skil. Farið er gegnum uppvinnslu sýkinga í MTK, hvaða greiningapróf eru gerð og hvaða myndrannsóknir geta komið að gagni. Einnig er meðhöndlun mismunandi tegunda sýkinga í MTK rædd. Loks undirstrikar Sigurður mikilvægi þess að hafa hraðar hendur og hefja meðferð sem fyrst!
Stjórnendur Dagáls læknanemans eru Sólveig Bjarnadóttir læknanemi á 6. ári og Teitur Ari Theodórsson læknanemi á 5. ári. Dagáll læknanemans er sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala.
Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.
SPOTIFY
SIMPLECAST
https://landspitalihladvarp.simplecast.fm/dagall-10
(Tónlist: "Garden Party" með Mezzoforte. Notað með leyfi frá hljómsveitinni.)